Könnun

Reykjanes er?

Auglýsing

Affelguðum í djúpinu

18. júlí 2006 klukkan 01:05
Kanski að maður bloggi víst að maður ætlar að skella nokkrum myndum inn frá þessari feiknar veltu sem maður tók um helgina. En fyrst vill ég óska Ágústi til hamingju með afmælið á föstudaginn, keyrðu varlega með bílprófið. En um helgina var farið í reykjanes í þessa frábæru ferð til að vígja ökuskirteinð hans Gústa. Lagt var að stað, sjálfsögðu eftir áætlun og lá leið okkar í bónus fyrst um sinn til að kaupa bensín og mat. kostaði það samanlagt rúman 12 þúsund kall en það er nú bara dropi í hafið fyrir vel múraða gaura eins og okkur.
En já, síðan var lagt á stað, reindar þá var stoppað í súðavík og fengið sér djúsí hambó og haldið síðan áfram. Eftir nokkra lúra og mikið gaul yfir geysladiskunum sem ég gaf ágústi í afmælisgjöf hrökk ég upp úr lausum svefni þegar ég fann hvernig bíllinn byrjaði að renna til á veginum vegna of mikils hraða, malarvegs og beygju og ég sé það að við ætlum greinilega að taka óvænt nestistopp. Síðan hentumst við út af veginum og tókum eina veltu og stoppuðum síðan. Síðan var spurt hvort að það væri ekki í lagi með alla og þrátt fyrir smá skrámur á mér og gúst vorum við með hestaheilsu.
Síðan eftir nokkur símtöl, skoðun á bílnum, förunum og kókglös komu loksins foreldrar mínir, gústa og löggan sem gerði sína vinnu og fór svo. Síðan var okkur bara skutlað inn í Reykjanes til að slaka á taugunum. Var farið beinustu leið í sund og síðan var vísað foreldrunum burt eftir að þau voru búin að redda því að eitthver gaur mundi síðan skutla okkur til bara á spíttbát sem við vorum mjög sáttir með.
Eftir sundið voru steiktir hamborgarar en höfðum við keypt 20 stykki í bónus sem nestið okkar. Síðan hélt gleðskapurinn áfram langt fram eftir nóttu og var farið að sofa um 6 leitið.

Daginn eftir var sofið, eldaðir hamborgarar, farið í sund og göngutúr og ætluðum við síðan að finna gaurinn sem ætlaði að gefa okkur far heim en neinei hafði hann þá bara ekki farið án okkar. Kall fjandinn, en hann Hannes sem er eitthver rússi sem vinnur þarna skutlaði okkur bara heim og allt í góðu.

Kostaði þá þessi ferð okkur 8 þúsund í mat, 5 þúsund í bensín, 1 opel astra og 9 þúsund í annan kostnað. En það er nú bara það besta mál og gott að einginn meiddist alvarlega.

Annars þá er ég búinn að vera að vinna seinustu vikurnar og síðan hanga með Bylgju seinustu vikurnar og mjög lítið skeð fram að þessu en fór hún til rvk þessa helgina að hitta gamlar skólasystur sínar úr dannmörku sem voru hérna í heimsókn í eitthvern tíma, en hún kemur síðan heim eitthvertíman í kvöld :)

Síðan er fer maður til bretlands með unglingadeildinni á föstudaginn og það er engin spurning um það að það verði meiriháttar fjör, hvenar ég kem heim er ég ekki allveg viss á en ég held að ég verið 10 daga úti.

En nóg í bili, endilega kíkjið á slysamyndirnar sem ég set inn ;)
Liljar Már Þorbjörnson
3 athugasemdir

Dúndur helgi, fer að líða að sumarfríi.

09. maí 2006 klukkan 04:14
Mánudagskvöld, búin að vera fín helgi. Gistum í dyngju og var það massa stuð, síðan á sunnudeginum var farið og mattað bát til að fjármagna utanlandsferð til englands með unglingadeildinni sem verður líklegast í sumar og verður það pottþétt gaman.
Tvö samræmd próf eftir, náttúrufræði og stærðfræði. Ætli maður fari ekki létt með það eins og maður vonar að það hafi gangið með hin prófin sem mér hefur fundist ágætlega létt en maður kvartar nú ekki yfir því. 
Einnig gleimdist að minnast á það að kjellinn varð 16 seinasta miðvikudag Svalur Þannig maður þarf að fara að vesenast eitthvað til að fara í ökuskólann og þannig stuff bráðlega síðan þarf fólk sko sannarlega að fara að vara sig.

En já, ætli maður skelli sér bara ekki í háttinn innan tíðar þannig þetta verður ekkert mikið lengra. Endilega kíkið í myndirnar sem ég var að leika mér að setja inn til að prufa myndastuffið, og einnig vill ég þakka Einari fyrir að hafa þær svona opinberar að maður gæti stolið þeim af síðunni hans (www.einarbirkir.smugmug.com)

Verið góð við allt og alla, þá gengur allt svo mikklu betur eins og hann afi gamli sagði á stöð tvö á sínum tíma.
Liljar Már Þorbjörnson
7 athugasemdir

Já, loksins loksins!

02. maí 2006 klukkan 17:21
Jæja nú fékk maður nóg að því að hafa aðeins Hamraborg sem eina staðinn með almennilegum skyndibitamat og þannig ég sendi höfuðstöðvum subways bréf! Fékk síðan svar í morgun og hérna kemur það:

Góðan daginn.  Þakka þér kærlega fyrir þetta skemmtilega bréf.  Við erum að leita eftir húsnæði á Ísafirði sem hentar en höfum ekki fundið enn.  Við höfum mikinn áhuga á að opna þar sem fyrst og munum gera það um leið og hentugt húsnæði finnst.

 

Ef þú fréttir af góðu verslunarhúsnæði á bilinu 90-150 fermetrar að þá þætti mér vænt um að þið létuð mig vita.

 

Kærar þakkir og vonandi opnum við þarna fyrr en seinna.

Kær kveðja / Best regards,
Skúli Gunnar Sigfússon
Eigandi og framkvæmdastjóri (Owner and General Manager)
Stjarnan ehf. (Subway Iceland, Inc.)


Þetta kalla maður nú bara snilld. Lífið væri mjög dásamlegt ef að maður gæti nú fegnið sér subway stundum og stundum.
Liljar Már Þorbjörnson
12 athugasemdir

Stutt í samræmdu, auðvitað lætur maður það ekki bitna á helginni.

30. apríl 2006 klukkan 17:38
Jæja það fer að stittast í djöfulinn sjálfan ef marka má kennarana, en það er nú bara gott. Maður er byrjaður að læra og svona og svo flýgur maður í gegnum þetta.
Föstudagurinn var bara geggjað stuð út í eitt, gamanið byrjaði allt í sundtíma þegar við vorum að "læra" skyndihjálp og að sjálfsögðu hann björgunarsveitarlúðinn sem ég er kann þetta út í gegn var ég alltaf að segja Árna til. Hann var reindar orðinn nett pyrraður á mér undir lokin.Ullandi Eftir það leið leiðin í bónus með Gústa, Grím og Davíð til að versla fyrir þessar feiknar gillveislu sem við höfðum í huga fyrir kvöldið. Og síðan var komið að því að velja matinn, hamborgarar urðu fyrir valinu. Var allt þarfaþing keypt og brunað síðan heim til Davíðs til að gera allt klárt, fyrir utan nokkur minnirháttar skakkaföll bjargaðist allt og loks var sest í sófann til að hvíla augun fyrir kvöldið og steinsofnuðum við Davíð og Grímur en Ágúst af ofsahræðslu við systur Davíðs þorfði ekki að sofna. Hissa
Loksins leið á kvöldið og maður var búinn að sturta sig og gera sig fínan þá náði Hermann í mig og eftir að hafa skutlað nokkrum grísum þvers og kruss þá enduðum við heima hjá Davíð. Byrjað var að grilla og var því náð án þess að brenna eitthvað meiriháttar. Síðan var étið þessa dírindis borgara síðan var bara allmenn ánægja, dans og borðum og þess fylgjandi eftir það, bara svona eins og gengur og gerist. Síðan eftir ýmsar stærðarbreitingar á hópnum var liðið orðið þyrst á að fara á ball, nokkrum símtölum reddað og enduðu allir í krúsinni fyir klukkan 1.
Ballið var fínt, flest allir í góðu gengi og ekki vantaði dansinn í liðið Glottandi
tvemur tímum síðar var ballið búið og að sjálfsögðu voru allir bílar fullir af fólki svo að ég og Loftur ákváðum að labba heim í þessum skítakulda en bjargaðist það vel og ég endaði nú bara með einhvað örlítið kvef en maður hristir það af sér eins og ekkert sé.

Síðan vaknaði maður eldhress á laugardagsmorguninn og gerði voðalega fátt til hálf 4 þegar maður fór hress og kátur í afmælisveislu hjá honum Ísaki sem varð 15 á föstudaginn og var hámað í sig kökum og góðgæti, síðan vegna hugmynda leisi um hvað ætti að gera fórum við að spila Gettu betur, barna og unglingaspilið og að sjálfsögðu unnum við Bylgja glæstan sigur. Síðan var farið út að gera einhvað mjög þroskað eins og tvítví og að eiðileggja gjafirnar sem við gáfum drengum Ullandi Og síðan leið á kvöldið og endaði þetta eiginlega bara í spjalli og eitthverju álíka vegna þreitu og anti-nenni í liðinu.

En nú er kominn sunnudagur og 1 mai á morgun, og að sjálfsögðu skellir maður sér í bíó enda massa mynd að venju. Hugmyndin er að fara í sund á suðureyri og síðan fer ég í fermingu hjá félaga mínum henni Jóhönnu klukkan 5. Þar verður örruglega góðar kræsingar. Hlæjandi

En ég mundi kalla þetta nóg fyrir daginn í dag.
Kveð að sinni, Liljar Már Svalur
Liljar Már Þorbjörnson
3 athugasemdir

Fyrsta bloggið

26. apríl 2006 klukkan 20:40
Það hlaut að koma að því einhvertíman að maður mundi einhvertíman byrja aftur að blogga síðan seinasta síða sökk of djúpt til að mögulega halda áfram.
Þetta verður bara stutt og laggott því ég er að fara í bæinn eftir smá, síðan ætla ég að reina að fikta aðeins í þessu dæmi í kvöld :P

Kveð að sinni Hlæjandi  Liljar.
Liljar Már Þorbjörnson
2 athugasemdir